Það má segja að fyrsta vikan hafi verið róleg hjá okkur.  En það hefur breyst og margir fyrrverandi kúnnar Fatabúðarinnar og Versins hafa kíkt í heimsókn.    „Loksins hægt að kaupa gæðarúmföt aftur“ sagði ein eldri kona við mig.  Vonandi tekst okkur halda áfram á þessari braut og bjóða upp á frábær gæða rúmföt frá Ítalíu og víðar um ókomin ár.